Vorum að taka í gagnið nýja vefverslun á síðunni okkar. Nýja vefverslunin er betur samhæfð með síðunni sem gerir hana auðveldari í notkun. Hægra megin eru stikkorð sem hægt er að smella á og þá færðu bara þá vöru. Einnig er hægt að smella á vöruflokka sem sýnir allar vörur í viðkomandi vöruflokki. Auðvelt er að leita að vörum með því að slá inn leitaorð. Enn erum við að bæta við vörum og viljum við hafa fyrirvara á innsláttarvillum. Um leið og við endurnýjum vefverslunina þá uppfærðum við útlitið á síðunni og vonum við að ykkur líki við það. Það gæti verið enn einhverjar villur sem að á eftir að lagfæra og biðjum við afsökunar á því. Enn sem komið er er ekki hægt að greiða með greiðslukortum í vefverslun og ef að óskað er eftir því þá hafið samband. Allur sendingarkostnaður er reiknaður út af Póstinum og er greiddur við móttöku vörunnar.
Category: Fréttir
Internet yfir sjónvarps lagnir
Frá Hirschmann er kominn búnaður til að senda internetið yfir sjónvarps kerfi það sem að fyrir er í húsinu. Ef að leggja þarf nettenginar um húsið þá gerir þetta hlutina auðveldari. Bara að tengja við inntakið og svo eitt á hvern þann stað sem að þarf að fá nettengingu. Til dæmis ef að ADSL myndlykill sé við sjónvarpið en beinirinn (routerinn) er við símainntakið og það er langt að fara með kapalinn þangað en það er loftnets lögn á milli þá er þetta lausnin.
Nánar hér
Tölvu lagnaefni
Erum með Digitus tölvu lagnaefni frá Assman í Þýskalandi. Vorum að fá tengla fyrir mola, patch panela bæði fyrir mola og venjulega og fleira og fleira.
Auðvelt er að tengja molana og setja þá í tenglana eða patch panelana. Þeir eru litamerktir eins og patch panelarnir þannig að fljótlegt er að tengja þá. Tryggir að allt er rétt tengt í fyrsta skipti.
Nýir mælar til að stilla diska

Erum með mæla sem er auðvelt að nota til að stilla inn gervihnattadiska. Þessa er auðvelt að nota. Tengir inn á kapal frá móttakara og í disk. Annar sýnir með nál og tón sem að breytist með meiri styrk. Hinn sýnir styrk með tölum og pípi sem að styttist með hækkandi styrk frá diski.
Kosta aðeins 5.900,- kr. og 3.800,- kr.
Ný senditíðni á RÚV frá gervihnetti
Rúv hefur verið fært aftur til baka yfir á Thor 5. Til að ná honum þarf að láta móttakarann leita upp á nýtt.
Satellite: Thor 5
Sendir: C12
Tíðni sendis: 11389 MHz
Pólun merkis: Horisontal
Symbol rate: 24,5 Msym/sec
Forward Error Correction: 7/8
DVB-S, QPSK
Sendingum verður hætt 17 des næstkomani á eldri tíðninni.
Hér eru leiðbeiningar fyrir stillingar á EnigmaX_des2012.
Hausttilboð á búnaði
Hausttilboð á búnaði
Húsbílaloftnet

Vorum að fá frá Triax loftnet fyrir húsbíla og ferðavagna. Við fengum tvær gerðir, UFO100 og UFO120.
-
Sérstaklega gert fyrir DVB-T, móttaka á FM/DAB/BIII/UHF merkjum
-
Innbyggður 28dB magnari
-
Yfirborð loftnetsins er sérstaklega meðhöndlað til að þola saltvatn og öll veður
-
Kemur með 2 (UFO100) eða 4 (UFO120) mismunandi festingum
- Upplagt fyrir heimilið, bátinn, fellihýsið, húsbílinn eða húsvagninn
- Notar 5-24 volt
Dómur um loftnetið hér
RÚV færist um sendi á gervihnetti
Rúv hefur nú færst á nýjan sendi yfir á Thor 6. Til að ná honum þarf að láta móttakarann leita upp á nýtt.
Eldri sendirinn verður samhliða í gangi þar til 30 maí 2012.
Nýju stillingarnar eru:
Sendir: A02
Tíðni: 10716 MHz
Pólun: Lóðrétt/Horisontal
Gagnahraði/Symbol rate: 24,5 Msym/sec
Leiðrétting/FEC: 7/8
DVB-S, QPSK
Leiðbeiningar hér um hvernig á að stilla Smart EnigmaX5
Nýjir mælar frá Rover
Rover eru komnir með nýja mæla á markaðinn. Þessir eru tilbúnir fyrir framtíðina. Til dæmis er HD Touch er með snertiskjá, DVB-T/T2, DVB-S/S2 mælingu og sérstalega hraðri mælingu til að stilla inn diska:
- DVB-T2 mæling fylgir
- OPTIC Inn fæst aukalega
- ASI Inn/út fæst aukalega
- T.S. Analyzer/Reader aukalega
- MPEG2 & 4 SD & HD mælingar
- Auto/Manual „LTE“ FILTERS aukalega
- Spanmælingar í rauntíma með MAX HOLD
- Rauntíma endurkast & microendurkast
- Tengi fyrir afruglara, CI
- 8 tíma LI-ION rafhlaða



